Panta ljós
Fylltu út eyðublaðið hér til að panta ljós á leiði. Athugaðu að ef þú velur að greiða með korti opnast greiðslugátt frá Rapyd.
Leiðbeiningar
Áður en pöntun er fyllt út þarf að vita númer leiðis. Númerið er í þremur hlutum og er á forminu 'A-01-23'.
Fyrsta skref pöntunar er að velja heildarfjölda pera sem á að setja á leiði. Ef ætlunin er til dæmis að setja 3 ljós á eitt leiði eru hér valin 3 ljós. Ef hinsvegar ætlunin er að setja á tvö leiði hlið við hlið, 3 ljós á hvort leiði, eru hér valin 6 ljós. Því næst er smellt á 'Setja í körfu' hnappinn.
Þegar smellt er á hnappinn opnast varan í körfunni og nú er hægt að setja inn nánari upplýsingar um leiðisnúmer, nafn hins látna, ljós á leiði við hliðina og fleira. Hér er hægt að velja útlit ljósa og koma á framfæri óskum um deilingu ljósa niður á leiði, til dæmis ef ætlunin er að setja 3 ljós á eitt leiði og 2 á annað.
Ef fylla á út fleiri en eina pöntun þarf að klára greiðsluferli fyrri pöntunar áður en næsta pöntun er sett inn.
Leiguskilmálar
- Þegar þú leigir jólaljós af Jólaljósin ehf ertu að leigja jólaljós á leiði í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
- Leigutímabilið er frá degi eftir pöntunardag, þó ekki fyrr en 9. desember til 6. janúar.
- Innifalið í leigunni er allt efni til lýsingarinnar svo og viðhald hennar þetta tímabil.
- Endurgreiðsla á leigu er eingöngu framkvæmd ef tvípöntuð hefur verið leiga á viðkomandi leiði.
- Leigan verður virk við greiðslu leigugjalds með greiðslukorti, millifærslu í banka eða með greiðslu í heimabanka.
